VIP MENN heim

Heilir allir lesendur. Erum nú komnir heim á klakann eftir vel heppnaða ferð til Parísar. Fórum út á völl með lest 5 og svo B línu, um kl 10 í morgun á staðartíma, vorum inn bókaðir og mettir um kl 12:30 og komnir í loftið með TF-FIP kl 13:25. Fögur flugfreyja gerði ferðina en ánægjulegri en ella með ásjónu sinni og var því flugferðin en ánægjulegri fyrir vikið. Þakka þér fyrir . Komum svo heim um kl 15:40 og vorum sóttir af ICE-VIP bíl út á völl sem ók okkur heim til mömmu sem eldaði handa okkur ekta íslenskt kjötfars.

Svo á morgun hefst hið venjulega líf.

Vil þakka öllum sem hlýddu og vil endilega hvetja ykkur til að koma semb oftast hingað til skemmtunar eða fróðleiks. Nýjustu og síðustu myndirnar fylgja nú með.

Með gleðilegum og þakkar kveðjum,

Jón Þorsteinn (NNF)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af sjö og tólf?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband